09október
18september
Endurlífgun lífsdaga minna
Ég veit ekki hvað skal segja, einhver sem les þetta enþá? Jæja ef svo skyldi vera þá allavega velkominn. Annars þá eru þetta bara hróp út í geiminn. Hróp sem enginn nema google.com og WebArchive heyra. En mér er svosem sama um það.Sumarið er virkilega liðið undir lok, leyfarnar af Ike kíktu í heimsókn og jú það er farið að hausta. En hvaða áhrif hefur það á lítinn stúdent sem situr mest allan tíman inn í Háskólatorgi eða Gimla lesandi lögfræðibækur. Jú, ég þarf að klæða mig betur og búið. Ég hef vanið komur mínar núna í haust í lesstofuna í Gimla líkt og í vor. Búin redda mér skáp og stela mér þægilegri stól en þessum horbjóði sem fyrverandi formaður stúdentaráðs var víst svo stollt af sér að hafa valið. En eitt angrar mig þó en við þessa lesstofu. Hvað er málið með kvennfólk og að ekki geta labbað hljóðlega á háhæluðum skóm? Vera notar mikið háhælaða skó en hjálpi mér, hún kann að tipla á tánnum í þeim og láta lítið sem ekkert heyrast. Hér hefur kvennfólk þrammað fram og aftur á pinnahælum sem glymja yfir allt. Hefur reyndar orðið stórgóð bæting á þessu eftir að einhver framtakssamur nemandi (mig grunar karlkynns) tók sig til og límdi út um allt miða sem stendur á "Vinsamlega gangið hljóðlega um!" Sá einstaklingur á mikið lof skilið.
Það er óneitanlega meistarabragur þessa dagana á báðum liðunum mínum í fótbolta. Ég hef farið á flesta heimaleiki Fram í sumar og nokkra útileiki (ætli ég sé ekki búin að sjá einhverja 12-13 leiki í sumar) og ég verð að segja að þó að Fram hafi ekki verið að spila neitt glimrandi vel á móti FH í gær þá áttu þeir fyllilega sigurinn skilið og með þessari baráttu áfram þá get ég vel séð okkur ná að stela 3. sætinu af Val og KR. Sjáum hvað setur.
Liverpool hefur byrjað alveg ágætlega í vetur, smávægilegt byrjunar hikst en eftir að hafa unnið Scum Utd. síðustu helgi og Marseille á útivelli 2-1 held ég að liðið sé að hrökkva í gang. Sjálfstraustið ætti að vera mikið og Gerrard & Torres að koma til baka úr meiðslum. Verður spennandi að sjá liðið eftir 2-3 vikur með þá í fullu fjöri, Riera og Babel búnir að stimpla sig rækilega inn og vonandi er Keane búin að setja 2-3 mörk þá. Eina sem ég skil lítið í varðandi liðsvalið hjá Benitez er afhverju Agger fær ekkert að spila. Það sem ég hef séð af honum þá er hann án efa annar af 2 bestu miðvörðunum okkar. Með þessu áframhaldi er ég hræddur um að hann verði seldur í janúar og við þurfum þá að fara að leyta okkur en og ný að 3/4 hafsent því Hyypia á bara 1-2 tímabil eftir.
Fyrir þá sem en ekki hafa frétt það þá er Vera flutt inn og við búum því saman. Spennandi tímabil að hefjast og get ég ekki sagt annað en ég sé hæst ánægður með þetta. Nei, gifting er ekki plönuð, hvað þá trúlofun eða barneignir. Jóhanna, þú verður bara að bíða aðeins lengur eftir því!
19ágúst
Í tilefni dagsins
Já, stutt og góð færsla. Kjallin varð bikarmeistari með Hvat í Carlsbergdeildinni í ár! 0-0 eftir venjulegan leiktíma þar sem ég var bara nokkuð sáttur með minn leik og við unnum í vító. Beggi skellti sér í markið í vító! En Hvatur er Carlsberg-bikarmeistari 2008!25júní
And then there was a blob
Hvað skal segja, lofaði bloggi um daginn og best að standa við stóru orðin. Lesendur mínir (hversu margir eða fáir sem þeir eru) farnir að senda mér hatursfull sms vegna skorts á bloggi!Ég skellti mér ásamt fríðu föruneyti til landi drauma, vona og framtíðar. Stóra eplið í því landi tók á móti okkur og gladdi okkur í rúma viku. The United States of America í allri sinni dýrð. New York borg var stór, full af fólki, full af gulum leigubílum, full af ljósum, full af lífi og ágæt í hófi. Byrjum á því neikvæða svo hið jákvæða fái að flæða og verða lengra en það neikvæða.
Ég var mjög feginn því að við vorum ekki á hóteli í miðri Manhattan, hefði fengið vel nóg af borginni ef ég hefði þurft að eyða þar 24 stundum alla þessa 10 daga. Borgin var einum of troðin fyrir mig. Djammið í Manhattan er fáranlegt og lame ass shit. Rukka 5 gaura 250$ fyrir vodkaflösku, bland og borð. Svo til að toppa þetta okurverð þá neihei fá stelpurnar frítt inn. Ég var ekki alveg til í að blæða 50$ fyrir djamm og smá hlut í vodkaflösku. Starbucks, var búin að heyra misjafnar sögur um þetta og ég verð að vera sammála þeim sem segja að þetta sé enganveginn besta kaffi sem hægt er að fá, drykkjarhæft og allt það, en hef smakkað svo miklu betra kaffi.
Sea Cliff var ótrúlega heillandi bær, húsið sem hjónin bjuggu í, Paul & Tina, var ótrúlega krúttlegt og flott. Matt var snillingur og Char bara krúttleg. Ferðafélagarnir voru bara hin mesta skemmtun og held ég að greyið Jóhanna sé en að jafna sig eftir öll skotin mín ;) svo fékk nú Begga bara að njóta þess að allir skutu á hana. Begga ég vil sjá þinn innri lit koma aftur fram á næsta djammi! Savanah var upplifun, hef aldrei lennt í því áður að vera að djamma á stað og vera svona greynilega í minnihlutahópi vegna litarfars húðar minnar. Mamma Mia var stórgóð skemmtun og David Ford var hápunktur Augustana tónleikana sem við fórum á. Minnti mig óneitanlega mikið á Damien Rice og mæli ég með að aðdáendur hans kíki á <a href="http://www.myspace.com/davidford"David Ford</a>. Mér tókst að eyða allt of miklum pening í föt og fylla töskuna mína allt of mikið en eins og Jóhanna segir, maður á að kaupa sér það sem maður vill í útlöndum ;)
En frá BNA yfir til Íslands. Ég verð að vinna (er byrjaður) inn á Holtavegi í sumar í Aðalstöðvum KFUM & KFUK á Íslandi. Er ráðsmaður/húsvörður þar og sé um viðhald á staðnum og fleira skemmtileg heit. Hef einmitt notið þess að vinna endalaust mikið úti undanfarnar vikur annað en sumir sem fá að stikna inni í ógeðslega miklum hita. Svo fer ég upp í Vatnaskóg 16. júli og verð í viku. Massa lið sem verður að vinna þarna með mér en það eru m.a. Þorkell Gunnar, Halldór, Hlynur, Árni Gunnar & Gylfi og svo verður eldhúsið skipað fögrum snótum ;)
Ég endaði með 100% árangur af fyrsta árinu mínu í lögfræði og náði að halda mér í fyrstu einkunn svo þetta er allt á réttri leið!
Fyrirgefðu Jóhanna en núna máttu hætta að lesa ef þú nennir ekki að lesa um uppáhaldsáhugamálið mitt, fótbolta.
Eins og hver heilvita maður ætti að vita þá er EM í gangi. Mitt lið er heppilega en inni í mótinu, Spánn. Rússar hafa komið ótrúlega skemmtielga á óvart og Pavluchenko, Ashayevt og Zhirkov (stafs?) hafa verið þrusu góðir og væri ég alveg til að skipta á sléttu á Crouch og Pavluchenko en það er alltaf spurning hvort þetta séu allt one hitt wonders. En ég vona að Spánn fari nú alla leið og það væri gaman að sjá Torres setja 1-2 mörk í næstu 2 leikjum.
Ég hef mætt á 5 af 8 leikjum Fram núna í sumar og verð að segja að liði er bara alveg ágætt. Hefur staðið sig framar mínum vonum og að vera í 3 sæti eftir 8 umferð er alls ekki slæmt. Nú er bara að vona að þeir haldi dampi og endi í topp 5, það væri alveg frábært og ég treysi þeim alveg til að ná því. Ef Henrik Eggerts er að koma til baka núna þá fáum við loksins einn alvöru kanntara inn í liðið sem getur tekið menn á, lagt upp og skorað. Verður spennandi að sjá hvernig sumarið þróast hjá mínum mönnum.
En ég ætla að láta þetta gott heita í bili, stay tuned.
Þar sem það er sumar gætu færslur orðið færri og lengra á milli þeirra.
16júní
Bloggleysi og frí
Já ég veit, langt síðan ég skrifaði síðast, hef bara ekki komið mér í það að setjast niður og hripa einhver orð á lyklaborðið lengi. Úr því verður bætt vonandi í vikunni og ætli það verði ekki langloka að hætti húsins.28apríl
Lið ársins.....OSTUR....OSTUR....OSTUR
Jæja þá er búið að tilkynna lið ársins í enska boltanum og valið á leikmanni ársins og ungstirni ársins. Kemur engum á óvart að C. Ronaldo hafi unnið besti leikmaðurinn en sumum, og þar á meðal mér, kemur á óvart að Cesc Fabregas hafi unnið besti ungi. Ég bjóst við að Ronaldo tæki þetta tvöfallt.Annars er lið ársins svona: James, Sagna, Vidic, Ferdinand, Clichy, Ronaldo, Gerrard, Fabregas, Young, Torres & Adebayor.
Ég er nú sammála þessu að mestu leyti nema hvað ég hefði persónulega valið Reina í markið (litað ég veit). Skilst reyndar, og hef séð smá til James, að hann hafi verið drullu góður í vetur og það getur vel verið rétt. En markmaður sem heldur hreinu oftast síðustu tvö tímabil og er eflaust þar í toppnum á þessu kemst í mitt mark hvenær sem er. Hef ekki verið stressaður með markmanninn síðan Dudek fór.
Ég set líka smá sp. merki við Clichy, Evra kemur sterkur inn í þessa stöðu hjá mér. Hefur verið fannta góður í vetur þó að hann hafi verið smávægilega meiddur núna í lok tímabilsins.
Hefði líka viljað henda Fabregas út og setja varnarsinnaðan miðjumann inná. Mascherano gerir gott tilkall til stöðunar, Essien hefur verið góður í vetur og Flamini hefur átt endurnýjaða lífsdaga hjá Arsenal, en ég held ég myndi enda með Macherano eða Essien. Blóðrauði liturinn minn segir mér að ég velji The Mach-Monster.
Lescot kemur reyndar líka til greina í miðvörðin, þá með Vidic eða Ferdinand, en þar sem hann spilar með Blue Shite (lesist Everton) þá á hann jafn mikið heima í liði ársins hjá mér og þeir tveir...sem sagt ekki. En ég skil valið á þessum tveimur risum og þeir hafa verið ótrúlegir saman í vetur. Mega sitja þarna mín vegna.
Mitt lið ársins (litað og aflitað eins og ég vill hafa það):
Reina
Sagna - Skrtel/Carragher - Ferdinand - Riise Nei djók! Evra
Mascherano - Essien
Ronaldo - Gerrard - Young? (vesen með þessa stöðu)
TORRES
Þjálfari: Blanda af Fungus & Benitez = Bill Shankley raised from the dead
Held ég sé að verða búin að læra yfir mig....
Fram vinnur Val 3-1 á fimtd. og Liverpool vinnur Chelsea 15-2 með 5 mörkum frá Torres & Gerrard, 2 frá Carragher, 2 frá Skrtel & 1 frá Reina (Víti). Okei án gríns, 1-1, framlengt, vító, Reina hetja and you know the rest. 6 dollan komin í hús og Benitez æviráðin!
Var Clifford siðapostuli að mati James?
24apríl
Fullorðnir karlmenn á mótþróaskeiðinu
Jæja, er þetta ekki orðið gott? Ég var sjálfur kominn með nóg af þessum mótmælum hjá vörubílstjórum fyrir nokkru síðan. Hef sjálfur heppilega ekki lennt í því að vera fastur vegna þeirra en vá hvað ég hefði nennt því einu sinni eða tvisvar en ekki oftar. Það sem gerðist í gær var sorglegur atburður og mun vonandi ekki endurtaka sig í bráð.Ég er hlynntur mótmælum, tel það vera einn af hornsteinum lýðræðisins að almenningur í landinu hafi rétt á því að mótmæla því sem rangt er og stjórnvöld eru að gera vitlaust. En mótmælin verða að fara rétt fram. Mér fannst þetta flott framtak hjá vörubílstjórum til að byrja með, keyrðu lötur hægt um göturnar og fólk tók eftir þeim. Hefðu reyndar að mínu mati mátt láta slökkviliðið vita fyrir fram svo þeir gætu gert viðeigandi ráðstafanir en það hefur ekki komið að sök hingað til. En núna er þetta farið að missa marks. Hversu lengi eiga þessi mótmæli að bitna á okkur almeninngi? Er ekki komin tími til að þetta fari að bitna á þeim sem virkilega geta breytt bensínverðinu?
Ég er sammála því að bensínverðið er orðið allt of hátt hérna á Íslandi, í raun allt of hátt í öllum heiminum. Mér skilst (skv. netmiðlum) samt að hæta bensínverðið sé engan veginn hér á Íslandi, frændur okkar Normenn selja dropann dýrari en við og álögur ríkisins í mörgum löndum er vel hærra en hér á Íslandi. Ég segi því að það sé ekki í raun við ríkið að sakast (nema þá að það kannski lækki vsk. á bensíni úr 24.5% í 7% en ég efast nú um að það gerist). Ég er á því að það eigi að fara að mótmæla gegn bensínstöðvunum. Þær bera alltaf fyrri sig hátt verð á olíu út í heimi og gjöld sem ríkið tekur. Hvernig væri að hætta að maka krókinn svona mikið og lækka verðið? Ég er á því að almenningur eigi að mótmæla við bensinstöðvar, olíutankana á geirsnesinu og þannig stöðum, þá fyrst fáum við kannski fljóta lækkun á bensíni.
Bara mér sem finnst pínu kaldhæðni í því að mennirnir sem eru að mótmæla háum bensingjöldum eru þeir sem fá vsk. endurgreiddan og skemma vegina mest? Reyndar má benda á að þeir eru einnig að mótmæla hvíldarlöggjöfinni og skorti á hvíldaraðstöðum úti á landi. Gott og vel, ég skal taka undir það að bæta hvíldaraðstöðuna en ég held að þessum bílstjórum veiti ekkert minna af hvíld en aðrir atvinnubílstjórar í Evrópu. Þessi löggjöf er afleiðing af EES-samingnum og ég vil frekar borga auka 100kr fyrir fluttning á kassa en að vörubílstjóri sé þreyttur undir akstri og valdi því aukinni hættu á slysum.
Finnst líka sorglegt hvað almenningur í landinu virðist vera tilbúin að hoppa upp og ásaka lögguna um harðræði. Öskra að við búum í fasista ríki þar sem lögreglan ræður ríkjum. Ég veit ekki betur en svo að lögreglan hér á landi sé oftast nær frekar þægileg og ekki með óþarfa vesen, allavega hef ég ekki tekið eftir því. Vissulega á að skoða mál gærdagsins og sjá hvað fór vel og hvað fór ílla. "Gas"maðurinn missti sig vel í gær fannst mér og ég öfunda hann ekki á því að þurfa að upplifa háðsglósur í kjölfarið. En það þarf tvo til að deila og bílstjórarnir verða að axla sinn part af ábyrgðinni. Voru það ekki annars þeir sem sáust í fréttum vera með WD40 brúsa og Easy start brúsa hótandi að nota þá á lögguna ef hún færi að sprauta á þá piparúða eða táragasi? Ég held nú að það sé mun hættulegra að fá á sig WD40, sérstaklega í augun, en nokkurntíman táragas eða piparúða. Löggan myndi ekki fá að nota slíkan búnað ef það væri einhver hætta á varanlegum skaða af völdum þeirra.
Pappakassinn sem Sturla Jónsson er orðin í fjölmiðlum er ekki góð ímynd fyrir bílstjórana, nær væri fyrir þá að skipta um talsmann og fá eins og t.d. eldri bílstjóran sem fór í stutt viðtal í fréttum Rúv í gær (talaði um olíu og lítið bál). Hann virkaði rólegur og kom vel fyrir en Sturla er einstaklega óheppin með orðalag, framsetningu og bara almenna framkomu í fjölmiðlum. Hrokinn og vælið lak svoleiðis af honum í Kastljósinu í gær að ég fór alvarlega að spá í að senda honum fullan kassa af pappír til að þurka tárin. Allt löggunni að kenna og þeir voru ekki að gera neitt rangt var það eina sem hann hafði að segja.
Ekki batnaði það svo þegar einhver hér í bænum ákvað í dag að kýla einn lögregluþjón þegar atvinnubílstjórarnir komu til að ná í bílana sína. Trúi því sem þeir segja að þetta hafi ekki verið neinn úr þeirra hópi, en þá spyr ég almenning, er þetta rétta leiðin til að taka undir þeirra málstað? Eigum við að svara hörðu með hörðu? Eigum við að teppa gatnamótin á Kringlumýrabraut og Miklubraut á morgun með það miklum fjölda af fólki að löggan eigi ekki séns í að ráða við mannskapinn (ósk einhverra á live2cruise að gera þetta)?
Ég tel að skynsamlegast væri fyrir alla Íslendinga að stoppa smá, draga djúpt andan, telja upp að tíu og láta 1-2 daga líða áður en framhaldið er ákveðið.
Að lokum finnst mér það fólk sem hefur sent Birni Bjarnasyni misgáfulega tölvupósta, þar sem það óskar honum löngum og kvalarfullum dauðdaga eða að hann skjóti sig, megi skammast sín. Hvers konar manneskju geymið þið? Mér finnst þetta lýsa ykkur mun meira en honum, lýsir vanþroska og vanhugsun ykkar. (Má benda á að undir einn tölvupóstinn skrifar 49 ára gamall maður, mér fannst pósturinn meira vera í takt við hvað 16 ára unglingur á mótþróaskeiðinu myndi skrifa).
Eitt að vera ósáttur við mannin og segja honum það, allt annað að óska honum alls hins versta og óska honum dauða. Hafið þið annars lifað lífinu svo miklu betur en hann?
Ég fór nú allt í einu að pæla, eru kannski allir þessir vörubílstjórar einfaldlega á mótþróaskeiðinu? Fá ekki það sem þeir vilja og leggjast þess vegna í götuna og væla...pæling
17apríl
Teenage mutant ninja turtles....
Afhverju held ég með Fram? Það er búin að skapast mikil umræða á spjallþræði sem ég stofnaði um Landsbankadeildina í sumar. Fólk keppist þar við að dissa KR á meðan KR-ingarnir hamast við að verja liðið sitt fram í rauðan dauðan. Ég fór í kjölfarið að spá afhverju held ég með Fram? Afhverju er mér svona ílla við KR? Afhverju nenni ég yfir höfuð að horfa á fótbolta?Ég get í raun ekki sagt að ég hafi alist upp í Fram-hverfinu. Þegar ég fæddist þá bjó ég í Kópavogi (man nú ekkert eftir því, en það er annað mál) og flutti svo þaðan til Noregs, kom heim í stutt stopp áður en ég fór til Englands, svo aftur stutt stopp heima og svo Eþíópía. Ég flutti ekki í Fram-hverfið í raun fyrr en ég var orðin 10 ára gamall. Þá voru flestir strákarnir í flokknum mínum búnir að æfa með liðinu frá 5-6 ára aldri. Ég hef samt verið Framari frá fyrsta andardrætti. Pabbi er KR-ingur svo ekki á hann neinn þátt í þessu hjá mér, amma Ásta og afi Gísli eru Valsarar en mamma og afi Doddi eru Framarar. Mig grunar að þau tvö hafi átt mestan þátt í þessu.
Ég upplifði aldrei gullaldar ár Fram og hef ekki upplifað það að sjá þá lyfta Íslandsmeistaratitli í fótbolta. Sá þó þegar strákarnir urðu Íslandsmeistarar í handbolta hérna um árið og er að spá í að skella mér á FH - Fram í kvennahandboltanum til að sjá stelpurnar vonandi lyfta dolluni þar. Ég get ekki sagt að ég sé Framari vegna einhverrjar velgengni hjá liðinu, þvert á móti. Frá því að ég kom heim '96 hefur liðið verið í stanslausri botnbaráttu og tekið sig reglulega til og farið 1 ár niður í 1 deild en komið svo jafn hraðan upp aftur. Gamall Framari sagði við mig síðasta sumar, eftir að ég sagði að mikið væri gott ef liðið mitt gæti gefið mér 1 árs frí frá taugaspennu allt mótið. "Fríi árin sem taugarnar okkar fá, eru árin sem við erum í 1 deild." Ég veit ekki frekar afhverju ég held með Fram, frekar en afhverju ég held með Liverpool. Mín kenning er einföld, foreldrarnir hafa mest áhrif á afstöðu manns. Mikið er ég fegin að "einu mistök" (að mati pabba) í uppeldi mínu eru þau að ég sé ekki KR-ingur! Guð forði mér frá svoleiðis vitleysu.
Afhverju er mér ílla við KR? Einfalt svar við því. Hroki stuðningsmannana (flestra). Verð nú samt að segja að mér fannst flott hjá þeim síðasta sumar (eftir mitt sumarið þá). Þegar þeir hættu að væla og skammast út í liðið og fóru að styðja það. Mynduðu þéttan hóp á bakvið það sem ég held að hafi án efa blásið smá lífi í leikmennina og fengið þá til að hysja smá upp um sig buxurnar og forðast fall.
Afhverju horfi ég á fótbolta? Fáranlega gaman, finnst gaman að spá í mismunandi taktíkum í leiknum, veitir mér gleði og svo er fáranlega gaman að spila hann. Góður og agaður varnarbolti er eitt það æðislegasta sem ég sé. Blússandi sóknarknattspyrna er það reyndar líka en ég hef alla tíð verið meira fyrir að bjarga marki á síðustu stundu en að skora mark. Að sjá svekkelsið hjá gaurnum þegar maður bjargar á línu er yndislegt.
Að allt öðru....það þarf að kenna þessum Windows notendum að slökkva á startup hljóðinu, það er nú ekki það flókið en men þetta getur verið truflandi í prófalestri. Svo má benda gaurnum á bakvið mig að það er ekki eðlilegt þegar viftan í fartölvunni þinni er alltaf á yfir 3000 snúningum, hún á að vera í 1500-2000 snúningum, farðu með hana í viðgerð!
[Update] Því ver og miður þurfa stelpurnar að treysta á aðrar en sjálfa sig til að vinna dolluna. Koma svo Valur, vinna Stjörnuna og Fram tekur FH í síðasta leik og dollan er þeirra!
10apríl
Life's full of misteries and wonders
Mikið hefur verið að ske á Íslandi undanfarna daga. Vörubílstjórnarnir hafa nú mótmælt í 12 daga, virðast þó hættir að teppa umferð en komnir út í að láta þetta bitna á ríkisstjórninni og í dag mótmæltu þeir þegar það var verið að taka skýrslu af Sturlu forsvarsmanni þeirra. Er þetta ekki komið gott hjá þeim? Ég styð þá í því að mótmæla háu bensínverði, þó má benda á að það sé orðið lægra en í útlöndum oft á tíðum. Mér fannst gott sem Þorkell bennti á í blogginu sínu, afhverju hætta þeir bara ekki að versla við stóru Olíufélögin og fá þau þannig til að lækka verðin hjá sér?Varðandi mótmælin með hvíldartímana og það allt þá er þetta vegna EES-samningsins, reyndar hefur maður heyrt undanfarið að það eru ýmsar undanþágur frá þessari reglu í gildi í sumum löndum ESB/EES svo það er sp. hvort við getum ekki fengið þannig undanþágu líka?
Til meðferðar á Alþingi er lagafrumvarp um opinbera háskóla, í því er ákvæði sem veldur breytingu á skipan háskólaráðs Háskóla Íslands. Ef það fer í gegn þá breytist hvernig niðurröðun sæta er skipað í ráðinu. Stúdentar fá einungis einn fulltrúa, kennarar fá 1 fulltrúa, menntamálaráðherra velur 2 og 2 verða valdir af fulltrúum sem fyrir eru í háskólaráði. Lögin eiga að taka gildi 1. júni 2008. Við þessa breytingu skerðist hlutur nemenda og kennara við ákvörðun innan æðsta stjórnvalds háskólans. Tel ég þetta ekki vera skref í rétta átt hjá Alþingi og vonandi verður þessu allavega haldið svo að nemendur og kennarar fái 2 fulltrúa.
Verður einnig að benda á að ef lögin taka gildi 1. júni 2008 breytist skipanin strax og við það missa nemendur 1 fulltrúa strax í ráðinu, fulltrúa sem kjörin var núna í febrúar til setu í ráðinu í 2 ár. Yrði að halda að það væri sérstakt að breyta þessu svona og væri nær að þessi nýja skipan tæki gildi eftir 2 ár. Í kjölfarið yrði reyndar að breyta hvernig stúdentaráð SHÍ er skipað þar sem í dag eiga báðir háskólaráðsfulltrúarnir sæti í ráðinu. Verð að segja að það væri spes að breyta t.d. kjördæmasætis fjölda einhvers kjördæmis og láta það taka gildi á miðju tímabili, við það ætti í raun einhver þingmaður að missa sæti sitt og þá sá sem fengi sætið hans að taka við. Væri það nú afskaplega skrítið og viss afturvirkni í raun falin í lögunum sem skerðir áunninn rétt einstaklingsins miðað við þágildandi lög, rétt sem ég hefði haldið að ekki væri hægt að taka af með þessum hætti. Verður forvitnilegt að sjá hvað gerist í þessu. Bendi fólki einnig á góða grein Krissa um frumvarpið á vef Vöku.
Liverpool komst áfram í CL í gærkveldi. Stórskemmtilegur 4-2 leikur þar sem taugarnar síðustu 10 mín voru alveg að fara með mig. Því ver og miður mætum við Chelsea í 3 skiptið á 4 árum en þýðir það ekki bara að við erum komnir sjálfkrafa áfram? Getum við ekki sleppt því að spila þessa leiki og bara hleypt Liverpool í úrslit? Gaman að sjá innkomu Babel í leiknum og Torres sannaði afhverju hann var keyptur, sást ekkert í leiknum eiginlega en fékk smá svæði og örlítin tíma og kláraði færið vel.
Verð nú að bæta við að varalið Liverpool er oðið deildarmeistari í norðurdeildinni. Stór góður árangur hjá liðinu og verður spennandi að sjá e-ð af þessum kjúklingum fá tækifæri með aðalliðinu á næstu árum. Plessis átti góða innkomu á móti Arsenal um síðustu helgi svo þetta lofar allt mjög góðu. Ef úr liðinu koma þó ekki nema 2-3 menn á næstu 3-4 árum þá er það samt góður árangur segi ég og það er líka sparnaður á 10-15 millj. punda miðað við verð á leikmönnum í dag.
Vegna nýrrar hárgreiðslu hjá mér er ég alvarlega að spá í að setja nr. 37 á bakið á Liverpool búningnum mínum. Martin Skrtel!
28mars
Liverpool - þú skiptir um konu, bíl, hús en aldrei lið í fótboltanum!
Var að lesa Rauða herinn (blað Liverpoolklúbbsins á Íslandi) og þar hefur verið undanfarið topp 5 leikmenn Liverpool fyrr og síðar nokkura stuðningsmanna. Ákvað ég í tilefni af því að lista mína topp 5 menn upp (hvet í leiðinni lesendur til að gera slíkt hið sama í commentum). Verð því miður að afsaka að enginn sem spilaði með Liverpool fyrir 1998 kemst á listan sökum ungs aldur minns og einstakrar fáfræði á eldri leikmönnum. Finnst ég ekki bær á að dæma Daglish, Keggan og þá eftir að hafa einungis séð brot af því besta af þeim.Nr. 5 - Dietmar Hamann - Þýski keisarinn
Ég hef alla tíð verið forfallin aðdáandi varnarsinnaðra miðjumanna og kunnað að meta það vanþákkláta starf sem þeir sinna. Hamann var einn sá besti í þessu fagi þegar hann var hjá okkur. Fór lítið fram, hélt sig í og við miðjuna en hann stoppaði ófáar sóknir með réttri staðsetningu, einfaldri tæklingu eða með því að pressa á réttum tíma. Pakkaði hreinlega Kaka saman í seinni hálfleik úrslitaleiksins í Istanbul 2005 og spilaði ristarbrotin í einum leik með liðinu vegna þess að allar skiptingar voru búnar.
Nr. 4 - Sami Hyypiä - Finnski risinn
Einn af mínum uppáhalds varnarmönnum fyrr og síðar. Stöðugur, hægur, les leikinn ótrúlega vel og staðsetur sig rétt. Sterkur í loftinu, óeigingjarn og hógvær. Hefur heillað mig frá því að hann kom til liðsins og svo sannarlega skilað sínu fyrir liðið. Ánægjulegt að hann er að fá 1 árs framlengingu á samningnum sínum, sem þýðir að hann nær að spila 10 ár með liðinu. Var ótrúlegur leiðtogi á tímabili og hefur verið traustur í vörninni frá því að hann kom.
Nr. 3 - Steven Gerrard - Captain fantastic
Einn besti miðjumaður heimsins í dag. Drifkrafturinn hans og áræðni hefur oftar en ekki fengið mig til að öskra á sjónvarpið, "Áfram Gerrard". Fínasta tækni, góð skot, ákveðni, tæklar hart og gefur ekkert eftir. Á það því miður til að týnast í örfáum leikjum og hengja haus en án efa einn af skemmtilegri leikmönnum sem ég hef séð spila með Liverpool. Man en eftir því í leiknum í Istanbul þegar hann peppar liðið upp eftir markið sitt og hvetur þá áfram. Liverpool maður alla leið.
Nr. 2 - Jamie Carragher - The Unsung Hero
Kletturinn í vörninni. Ef einhver hefur Liverpool hugafarið þá er það þessi maður. Gefst aldrei upp og heldur áfram sama hvað. Fótbrotnaði í leik en ætlaði samt að standa upp til að halda áfram. Hefur blómstrað á síðustu tímabilum í miðverðinum og orðið betri og betri. Engin svaðaleg tækni en ákveðnin, þrjóskan, baráttuviljinn og hugurinn til að gefast aldrei upp hefur komið honum langt. Án efa með skemmtilegri mönnum sem ég hef séð klæðast rauðu treyjunni.
Nr. 1 - Michael Owen - Gulldrengurinn
Man enþá eftir því þegar ég sá fyrsta leikinn með Liverpool og Owen var inná. Tók á rás og skaut sér framhjá varnarmönnum Aston Villa (minnir mig) og skoraði. Barnslegt andlit hans skein af gleði þegar hann fagnaði markinu. Þarna var fyrsta alvöru fótboltahetjan mín komin fram á sviðið. Hraðinn, tæknin, nýtingin og gleðin sem skein af honum á fyrstu árum hans hjá liðinu var ótrúleg. Uppalinn gulldrengur sem hefði getað áorkað svo mikið hjá okkur. Eina sem setur svartan blett á hann er að hann fór strax og Benitez kom, hefði átt að gefa honum séns. Hann, ásamt pabba, eru án efa tvær stærstu ástæðurnar fyrir því að ég held með Liverpool í dag.
